Uppbyggingarstefnan

Þarfirnar

Tilheyra

Á illa við mig Á stundum við mig Á vel við mig
Mig langar að eiga og eignast vini
Það er auðvelt fyrir mig að tala við hvern sem er
Mér finnst gaman að vera í símanum
Mér finnst gott að vinna með öðrum
Ég er mikið með öðru fólki
Ég vil að öðrum líki við mig
Það skiptir mig miklu máli hvað vinum mínum finnst um mig
Ég vil að fólk sé ánægt með mig
Ég vil frekar vinna með öðrum en ein/einn
Mér finnst gaman að hitta nýtt fólk


Áhrif

Á illa við mig Á stundum við mig Á vel við mig
Mér finnst vont að gera mistök
Ég vil fylgjast vel með áður en ég prófa eitthvað nýtt
Mér líkar illa við breytingar
Ég vil hafa borðið mitt snyrtilegt
Ég vil vera góð/góður í því sem ég geri
Mér finnst skipta máli hvað öðrum finnst um mig
Ég er ekki spennt/spenntur fyrir að prófa nýja hluti
Ég vil hafa rétt fyrir mér
Ég vil ráða
Mér líður illa þegar ég fæ ekki að ráða


Frelsi

Á illa við mig Á stundum við mig Á vel við mig
Mér finnst gott að hafa val
Ég er kraftmikil persóna
Að sitja lengi kyrr er mér erfitt
Mér finnst ekki gott að lesa lengi í einu
Mér finnst gaman að prófa nýja hluti
Mér finnst gott að vera ein/einn ef mig langar til þess
Mér er sama í hvernig fötum ég er
Ég geri ýmislegt sem aðrir hafa ekki áhuga á
Mér finnst ekki gott að láta segja mér hvað ég á að gera
Að vera snyrtilegur skiptir mig litlu máli


Gleði

Á illa við mig Á stundum við mig Á vel við mig
Ég hlæ mikið
Ég safna hlutum
Mér finnst gaman að segja brandara
Mér finnst gaman að koma fólki til að hlæja
Stundum er ég með fíflagang
Ég hef gaman af spilum og leikjum
Mér finnst margir hlutir skemmtilegir
Mér finnst skólinn skemmtilegur
Mér finnst gaman að syngja og/eða dansa
Fólki finnst ég skemmtileg(ur)